Áhersla er lögð á aukinn orðaforða með lestri mismunandi texta. Áfram er lögð áhersla á hlustun og ritun sem og munnlega tjáningu um það sem fram fer í áfanganum.
15 feiningar á 1. þrepi í þýsku.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
grundvallarþáttum málkerfisins
menningu og þjóðfélagi þýskumælandi svæða í samanburði við Ísland
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrifa margs konar texta og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
skilja mál sem talað er við mismunandi aðstæður og algeng orðasambönd
taka þátt í samskiptum á viðeigandi hátt og beita málfari við hæfi
lesa ýmiss konar texta, bæði hraðlestrartexta og þyngri innihaldsmeiri texta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fjalla á ítarlegan hátt, bæði munnlega og skriflega, um efni sem hann hefur kynnt sér
tjá eigin skoðanir, bæði munnlega og skriflega á tungumálinu
lesa lengri samfellda texta
Framfarir nemenda eru stöðugt metnar og tekið er tillit til allra færniþáttanna fjögurra (lestur, hlustun, tal og ritun). Mat felst í prófum og verkefnum, munnlegum og skriflegum. Framfarir nemenda eru stöðugt metnar. Mat felst í prófum og verkefnum, munnlegum og skriflegum.