Meginefni áfangans eru breiðbogaföll, heildun, pólhnitakerfi, tvinntölur og diffurjöfnur auk tengdra viðfangsefna. Breiðbogaföll eru skoðuð og þau borin saman við hornaföll. Farið er í hvernig heildun er notuð til að finna rúmmál snúða, yfirborð og bogalengd. Einnig eru pólhnitakerfi og tvinntölur skoðaðar í rétthyrndum hnitum og pólhnitum. Lausnir annars stigs línulegra diffurjafna með stuðlum úr mengi rauntalna. Skoðuð eru tengsl milli efnis áfangans og hagnýtingu þess. Í áfanganum er lögð áhersla á skipulögð vinnubrögð, röksemdafærslur og nákvæmni í framsetningu við lausn verkefna í stærðfræði.
STÆF3HD05 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
breiðbogaföllunum, reglum þeim tengdum og óbein tengsl þeirra við hornaföll
heildun og rúmmálsreikningum snúðs
pólhnitakerfinu og tengslum þess við rétthyrnt hnitakerfi
tvinntölukerfinu
annars stigs línulegum diffurjöfnum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skoða og teikna breiðbogaföll og beita reglum þeim tengdum
reikna rúmmál snúðs sem fram kemur þegar svæði er snúið um láréttan eða lóðréttan ás
skoða og nota tvinntölureikning, bæði á venjulegu formi og á pólhnitaformi
breyta stærðartáknum úr rétthyrndu kerfi yfir í pólhnit og öfugt
leysa annars stigs línulegar diffurjöfnur, með rauntölustuðlum, bæði hliðraðar og óhliðraðar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja tvinntölur og geti samsvarað þær vigurreikningi í tvívíðu rúmi
meðhöndla tvinntölur og geta sýnt öðrum hvernig þær eru uppbyggðar
útskýra hvernig snúðar myndast og nýta heildun til að finna rúmmál þeirra
fjalla um notagildi diffurjafna og í hverju lausn þeirra er fólgin
setja margs konar verkefni upp með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstyðja aðferðir sínar
skrá lausnir sínar skipulega og skiptast á skoðunum um þær við aðra
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.