Akademískur orðaforði á ensku og klassískar bókmenntir
Samþykkt af skóla
2
5
Markmið áfangans er að efla menningarvitund nemenda með því að þjálfa þá í að tjá sig um eigin samfélag og menningarheim á ensku. Lesin eru klassísk bókmenntaverk á enskri tungu og nemendur þjálfaðir í að rýna í bókmenntatexta og ræða umfjöllunarefni verkanna út frá eigin reynslu og skilningi. Einnig er það markmið áfangans að nemendur bæti markvisst við orðaforða sinn, með áherslu á akademískan orðaforða og öðlist þar að auki dýpri skilning á flóknari málfræði enskrar tungu. Farið er yfir grundvallaratriði í ritun texta af ýmsum toga og nemendur æfa sig í nýtingu þeirra með hliðsjón af orðaforðanum sem farið er yfir í áfanganum.
ENSK2OM05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
orðaforða sem tengist eigin samfélagi og menningu og þeim menningarheimum þar sem enska er töluð
flóknari málfræði enskrar tungu
uppbyggingu mismunandi texta s.s. blaðagreina, fræðigreina, bókmenntatexta o.fl.
þekkingu sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám
orðaforða til að geta tjáð sig á erlendum tungumálum í tengslum við sérþekkingu eftir því sem hún krefst þess
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tjá sig um sitt eigið umhverfi og menningu á ensku
beita flóknari málfræðireglum í ræðu og riti
túlka með eigin orðum á ensku efni frá mismunandi miðlum
tjá sig í ræðu og riti um margvísleg mál frá eigin brjósti
skrifa margskonar texta s.s. greinagerðir, ritgerðir, úrdrætti, dagbókafærslur, bloggfærslur o.fl., þar sem ritreglur eru virtar
tjá sig á skýran, ábyrgan og skapandi hátt um sérhæfða þekkingu sína
sýna frumkvæði og sjálfstæði í grunnvinnubrögðum
taka þátt í samræðum um viðfangsefni áfangans og hugðarefni sín
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig í ræðu og riti um viðfangsefni sem tengjast eigin sögu og menningu beita málfræðiþekkingu áfangans bæði munnlega og skriflega
gera sér grein fyrir skoðun og afstöðu höfunda margvíslegra texta og geta tjáð sig um hana bæði munnlega og skriflega
lesa milli línanna og átta sig á dýpri merkingu í texta
taka þátt í skoðanaskiptum á ensku og geta útskýrt sjónarmið varðandi efni sem er ofarlega á baugi
færa rök fyrir máli sínu og svara gagnrökum, bæði í ræðu og riti túlka og endursegja fjölbreytta íslenska texta á ensku
tengja þekkingu sína og leikni við það umhverfi og menningarheim sem hann býr við
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá