Markmið áfangans er að nemendur auki við og æfi frekar þá málfræðiþekkingu sem þeir öðluðust í grunnskóla, ásamt ríkri áherslu sem lögð er á aukinn orðaforða. Nemendur kynnast menningu og málfari mismunandi enskumælandi svæða. Margvíslegar greinar og bókmenntir tengdar þessum menningarsvæðum eru teknar fyrir til lestrar og umræðu. Lögð er áhersla á að nemendur þjálfist í sjálfstæðum vinnubrögðum; hvort sem er í einstaklings- eða hópavinnu. Unnið er með samskiptafærni í ræðu og riti, þar sem nemendur beita tungumálinu fyrir sig á skipulegan hátt. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist færni í að færa rök fyrir máli sínu og séu færir um að skrifa texta af ýmsum toga.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi viðhorfum og gildum fólks í enskumælandi löndum
grunnatriðum málfræði enskrar tungu
orðaforða í tengslum við efni áfangans
samspili íslenskrar og enskrar tungu
fjölbreyttum orðaforða til að geta tjáð skoðanir sínar og rökstutt þær í daglegu lífi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja algengustu orðasambönd sem einkenna enskt mál
greina á milli máls frá mismunandi málsvæðum (hreim, mállýskur)
lesa fjölbreytta texta í formi bókmennta, blaðagreina o.s.frv.
rita lipra texta
tjá sig munnlega við mismunandi aðstæður
beita sjálfstæðum vinnubrögðum og mismunandi námstækni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina á milli menningar á mismunandi enskumælandi landsvæðum
hagnýta sér málfræðiþekkingu sína í ræðu og riti
hagnýta sér orðaforða áfangans í ræðu og riti
skrifa læsilegan texta um fjölbreytt viðfangsefni
nýta sér ýmsa námstækni og beita sjálfstæðum vinnubrögðum
túlka og endursegja fjölbreytta texta
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá