Áfanginn er byrjunaráfangi og áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Nemendur fá innsýn í menningu og staðhætti á franska málsvæðinu og kynnast samskiptavenjum og siðum. Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í öllum málfærniþáttum: tali, hlustun, ritun og lesskilningi. Áhersla er lögð á framburð, grunnatriði málnotkunar og uppbyggingu orðaforða sem tengist nemandanum og hans nánasta umhverfi. Nemendur þjálfist í sjálfstæðum vinnubrögðum og tileinki sér árangursríka námstækni.
Engin
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
grundvallarþáttum franska málkerfisins
framburðarreglum og tónfalli tungumálsins
frönskumælandi löndum og fengið innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þeirra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnugleg efni
fylgja einföldum fyrirmælum og skilja helstu kveðjur og kurteisisávörp
lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengist honum, umhverfi hans og áhugamálum
taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, áhugamálum og sínu nánasta umhverfi með því að beita orðaforða og framburði á sem réttastan hátt
skrifa stuttan, einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi, fylla út einföld eyðublöð, skrifa póstkort og minnismiða
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig munnlega og skriflega á einfaldan hátt um persónulega hagi og efni sem hann þekkir
greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
skilja meginatriði einfaldra texta og greina einfaldar upplýsingar
segja frá sjálfum sér og nánasta umhverfi sínu
nýta þekkingu og leikni til að leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
meta eigið vinnuframlag og kunnáttu
tileinka sér jákvætt viðhorf til frönskunámsins og öðlast trú á eigin getu í faginu
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.