Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425296257.04

    Franska B
    FRAN1FB05
    13
    franska
    hlustun og ritun, lesskilningur, tal
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Helstu atriði FRAN1FA05 eru rifjuð upp um leið og bætt er við orðaforða og málfræði. Áhersla er lögð á að þjálfa áfram alla málfærniþætti: munnlega og skriflega tjáningu, hlustun og lesskilning. Unnið er með orðaforða sem tengist m.a. nánasta umhverfi nemandans, daglegum athöfnum og ferðalögum. Ný málfræðatriði eru æfð. Menningu og staðháttum frönskumælandi landa er fléttað inn í kennsluna m.a. í gegnum lestur viðeigandi texta sem varpa ljósi á daglegt líf. Gerðar eru kröfur um sjálfstæð vinnubrögð og árangursríka námstækni.
    FRAN1FA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná markmiðum áfangans
    • grundvallarþáttum franska málkerfisins
    • framburðarreglum og tónfalli
    • frönskumælandi löndum og fengið aukna innsýn í menningu og siði þjóðanna
    • samskiptavenjum og mismunandi notkun málsins eftir aðstæðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja einfaldar setningar, spurningar og upplýsingar sem tengjast daglegum athöfnum hans
    • skilja einfaldar leiðbeiningar og fyrirmæli
    • skilja stutta texta þar sem sagt er frá daglegu lífi, atburðum og tilfinningum eða óskað er eftir upplýsingum
    • greina lykilatriði í stuttum textum, blaða- og tímaritsgreinum
    • afla sér einfaldra, hagnýtra upplýsinga
    • geta greint frá eigin reynslu, skoðun og tilfinningum
    • spyrja og svara einföldum spurningum um liðna atburði
    • skrifa einfaldan texta um efni sem hann þekkir, persónuleg bréf, stuttar frásagnir og greina frá liðnum atburðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hlusta á og fara eftir leiðbeiningum, skilaboðum og tilkynningum sem tengjast daglegum athöfnum og bregðast rétt við
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
    • tileinka sér meginefni í textum um daglegt líf og atburði, ásamt textum um menningarleg málefni
    • takast á við tilteknar aðstæður í samskiptum og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
    • miðla á einfaldan hátt eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
    • miðla á einfaldan hátt efni sem hann hefur tileinkað sér í áfanganum
    • skrifa um málefni og atburði sem byggjast á persónulegri og ímyndaðri reynslu
    • skipuleggja nám í áfanganum og námsaðferðir við hæfi
    • meta eigið vinnuframlag og framfarir í málinu
    • sýna aga, metnað, sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og trú á eigin getu
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.