Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425296722.94

    Franska C
    FRAN1FC05
    14
    franska
    hlustun og ritun. menning og staðhættir frönskumælandi landa, lesskilningur, tal
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa nú þegar tileinkað sér. Áfram er lögð áhersla á að efla menningarvitund nemenda og staðháttum og siðum frönskumælandi landa er fléttað inn í kennsluna og áhersla lögð á viðeigandi samskiptavenjur. Nemendur eru áfram þjálfaðir í færniþáttunum tali, hlustun og ritun og jafnframt eru gerðar meiri kröfur um að þeir tileinki sér fjölbreyttan orðaforða með lestri lengri texta. Ný málfræðiatriði eru tekin fyrir. Gerðar eru meiri kröfur um sjálfstæð vinnubrögð nemanda og árangursríka námstækni.
    FRAN1FB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mannlífi, menningu og siðum í frönskumælandi löndum
    • samskiptavenjum og mismunandi notkun málsins eftir aðstæðum
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná hæfnimarkmiðum áfangans
    • grundvallarþáttum franska málkerfisins
    • formgerð og uppbyggingu texta og mismuninum á töluðu og rituðu máli
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná hæfnimarkmiðum áfangans
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fylgja aðalatriðum í samtali tveggja eða fleiri þegar rætt er um almennt efni og talað er skýrt og áheyrilega
    • fylgjast með frásögnum um kunnuglegt efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
    • fylgja söguþræði í einföldum/einfölduðum skáldsögum
    • greina aðalatriði í blaðagreinum og textum um almennt og sérhæfðara efni sem tengist áhugasviði hans
    • afla sér upplýsinga, t.d. með skimun lengri texta og lestri bæklinga, bréfa, dagblaða, upplýsinga á netinu o.fl.
    • segja frá og ræða við aðra á skýran hátt um liðna atburði, reynslu og áform
    • halda stutta kynningu á fyrirfram undirbúnu efni
    • skrifa stöðluð bréf, samfelldan texta um ýmis efni s.s. endurminningar eða framtíðaráform
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hlusta á og fara eftir leiðbeiningum, skilaboðum og tilkynningum sem tengjast daglegum athöfnum og bregðast rétt við
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
    • fylgjast með frásögnum og erindum og ná aðalatriðum um kunnuglegt efni úr fjöl- og myndmiðlum
    • tileinka sér aðalatriðin í fjölbreyttum textum og geta dregið ályktanir af því sem hann les
    • takast á við tilteknar aðstæður í samskiptum, beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum og halda samtalinu gangandi
    • miðla á einfaldan hátt eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu, vonum og væntingum
    • útskýra ákvarðanir og fyrirætlanir og rökstyðja mál sitt á einfaldan hátt
    • skrifa samfelldan texta um tiltekið efni og beita viðeigandi málfari
    • hagnýta þann orðaforða sem áfanginn byggir á í ræðu og riti
    • skipuleggja nám í áfanganum og námsaðferðir við hæfi
    • meta eigið vinnuframlag og framfarir í málinu
    • sýna aga, metnað, sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og trú á eigin getu
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.