Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425302692.25

    Þýska A
    ÞÝSK1ÞA05
    27
    þýska
    undirstaða tungumálsins
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn er byrjunaráfangi og áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Nemendur fá innsýn í menningu og staðhætti á þýska málsvæðinu og kynnast samskiptavenjum og siðum. Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í öllum málfærniþáttum: tali, hlustun, ritun og lesskilningi. Áhersla er lögð á framburð, grunnatriði málnotkunar og uppbyggingu orðaforða sem tengist nemandanum og hans nánasta umhverfi. Nemendur þjálfist í sjálfstæðum vinnubrögðum og tileinki sér árangursríka námstækni.
    Engin
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
    • grundvallarþáttum þýska málkerfisins
    • framburðarreglum og tónfalli tungumálsins
    • þýskumælandi löndum og fengið innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þeirra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni
    • fylgja einföldum fyrirmælum og skilja helstu kveðjur og kurteisisávörp
    • lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengist honum, umhverfi hans og áhugamálum
    • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
    • segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, áhugamálum og sínu nánasta umhverfi með því að beita orðaforða og framburði á sem réttastan hátt
    • skrifa stuttan, einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi, fyllt út einföld eyðublöð, skrifað póstkort og minnismiða
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá sig munnlega og skriflega á einfaldan hátt um persónulega hagi og efni sem hann þekkir
    • greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
    • skilja meginatriði einfaldra texta og greina einfaldar upplýsingar
    • segja frá sjálfum sér og nánasta umhverfi sínu
    • nýta þekkingu og leikni til að leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
    • meta eigið vinnuframlag og kunnáttu
    • tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunámsins og öðlast trú á eigin getu í faginu
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.