Helstu atriði ÞÝSK1ÞA05 eru rifjuð upp um leið og bætt er við orðaforða og málfræði. Áhersla er lögð á að þjálfa áfram alla málfærniþætti: munnlega og skiflega tjáningu, hlustun og lesskilning. Unnið er með orðaforða sem tengist m.a. nánasta umhverfi nemandans, daglegum athöfnum og ferðalögum. Ný málfræðatriði eru æfð. Menningu og staðháttum þýskumælandi landa er fléttað inn í kennsluna m.a. í gegnum lestur viðeigandi texta sem varpa ljósi á daglegt líf. Gerðar eru kröfur um sjálfstæð vinnubrögð og árangursríka námstækni.
ÞÝSK1ÞA05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná markmiðum áfangans
grundvallarþáttum þýska málkerfisins
framburðarreglum og tónfalli
þýskumælandi löndum og fengið aukna innsýn í menningu og siði þjóðanna
samskiptavenjum og mismunandi notkun málsins eftir aðstæðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja einfaldar setningar, spurningar og upplýsingar sem tengjast daglegum athöfnum hans
skilja einfaldar leiðbeiningar og fyrirmæli
skilja stutta texta þar sem sagt er frá daglegu lífi, atburðum og tilfinningum eða óskað er eftir upplýsingum
greina lykilatriði í stuttum textum, blaða- og tímaritsgreinum
afla sér einfaldra, hagnýtra upplýsinga
geta greint frá eigin reynslu, skoðun og tilfinningum
spyrja og svara einföldum spurningum um liðna atburði
skrifa einfaldan texta um efni sem hann þekkir, persónuleg bréf, stuttar frásagnir og greina frá liðnum atburðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hlusta á og fara eftir leiðbeiningum, skilaboðum og tilkynningum sem tengjast daglegum athöfnum og bregðast rétt við
leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
tileinka sér meginefni í textum um daglegt líf og atburði, ásamt textum um menningarleg málefni
takast á við tilteknar aðstæður í samskiptum og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
miðla á einfaldan hátt eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
miðla á einfaldan hátt efni sem hann hefur tileinkað sér í áfanganum
skrifa um málefni og atburði byggða á persónulegri og ímyndaðri reynslu
skipuleggja nám í áfanganum og námsaðferðir við hæfi
meta eigið vinnuframlag og framfarir í málinu
sýna aga, metnað, sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og trú á eigin getu
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.