Í áfanganum er unnið með aðferðarfræði. Helstu hugtök bókmennta, málnotkunar og ritunar eru tekin til athugunar. Nemendur eru m.a. þjálfaðir í gerð heimildaritgerða og frágangi ritaðs máls. Farið er í helstu grundvallaratriði setningafræði og fjallað er um ýmislegt tengt málnotkun. Einnig vinna nemendur með helstu hugtök bókmenntafræði. Lesin er ein valbók og unnið með hana. Auk þess fá nemendur lestrarþjálfun við lestur ýmiskonar texta.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnhugtökum í bókmenntafræði
helstu málfræðihugtökum og ritreglum
byggingu ritsmíða
grundvallarvinnubrögðum við skrif heimildaritgerða
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
rita ólíkar tegundir ritsmíða þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun og kemur skoðunum sínum á framfæri á greinargóðan hátt
nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiskonar heimildum og flétta saman við eigin viðhorf og ályktanir
nýta málfræðihugtök og málfræðilegar upplýsingar til að efla eigin málfærni
lesa sér til gagns og gamans
fjalla um bókmenntaverk og inntak þeirra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna ólík verkefni í tengslum við námsefnið og sýna tilbrigði í málnotkun
styrkja eigin málfærni, t.d. með því að nýta málfræðiupplýsingar í handbókum og á veraldarvefnum
beita skýru og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu