Í áfanganum er unnið með hugmyndafræði fornbókmennta. Fjallað er um goðafræði og lesið úr Snorra-Eddu, nokkur eddukvæði eru skoðuð og unnið er með ritun og bókmenntahugtök. Nemendur eru þjálfaðir í gerð heimildaritgerða og frágangi ritaðs máls.
ÍSLE2MR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
íslenskum og norrænum fornbókmenntum
helstu hugtökum í ritgerðasmíð
grundvallarvinnubrögðum við skrif heimildaritgerða
mismunandi tegundum sköpunarsagna og norrænni goðafræði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið
rita rökfærsluritgerðir þar sem beitt er gagnrýninni hugsun og skoðun komið á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
styrkja eigin færni í að nota heimildir á réttan hátt
túlka bókmenntatexta frá ýmsum tímum
taka þátt í málefnalegum umræðum, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu