Í áfanganum er lögð áhersla á tengsl tungumáls, bókmennta og þjóðfélags frá siðaskiptum fram að aldamótunum 1900. Bókmenntir tímabilsins eru skoðaðar og vakin athygli á hvernig þær lýsa þjóðfélagsaðstæðum og menningarlífi hverju sinni. Nemendur lesa valda texta og lögð er áhersla á höfunda sem setja svip sinn á bókmenntirnar. Nemendur kynnast hugmyndum manna á tímabilinu um íslenska tungu og viðleitni til málhreinsunar og þjálfast í að tjá sig í ræðu og riti um einstök verk og höfunda.
5 einingar á 2. þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu einkennum bókmennta á tímabilinu 1550 – 1900
helstu höfundum og verkum tímabilsins
orðaforða bókmennta frá tímabilinu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina helstu einkenni bókmennta á tímabilinu 1550-1900
lesa og fjalla um helstu bókmenntaverk tímabilsins
greina myndmál og stílbrögð í bókmenntum tímabilsins
skrifa um bókmenntir af þekkingu og á gagnrýnan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrifa af þekkingu vel uppbyggðan texta um bókmenntir tímabilsins
tjá skoðanir sínar og afstöðu á skýru og greinargóðu máli
átta sig á tengslum bókmennta og samfélags á tímabilinu
skilja dulinn boðskap og hugmyndir sem birtast í textum tímabilsins