Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425646687.66

    Inngangur að uppeldisfræði
    UPPE2UM05
    15
    uppeldisfræði
    uppeldis- og menntunarfræði - inngangur
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er uppeldi skoðað frá ýmsum sjónarhornum. Fjallað er um foreldrahlutverkefnið og rætt um hverju væntanlegir foreldrar geta búist við þegar von er á barni. Kynntar eru aðferðir atferlisstefnunnar við uppeldi og agastjórnun. Nemendur kynnast helstu námskenningum og kenningum í uppeldis- og kennslufræði. Fjallað er um menntakerfið, hlutverk þess og mismunandi skólastig. Unnið er með námskrár. Fjallað er um íþrótta- og tómstundamál. Leitast er við að tengja námsefni og verkefni við líf nemenda.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • foreldrahlutverkinu
    • aðferðum atferlisstefnunnar við uppeldi og agastjórnun
    • helstu námskenningum og kenningum í uppeldis- og kennslufræði
    • hlutverkum menntakerfis og mismunandi skólastigum
    • íþrótta- og tómstundamálum á Íslandi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • útbúa undirbúningsáætlun og kostnaðaráætlun í tengslum við komu barns í heiminn
    • skipuleggja leikskólastarf og tómstundastarf
    • mynda sér skoðun á skipulagi skólastarfs og geta kynnt þá skoðun í ræðu og riti
    • vinna úr fræðilegum texta um uppeldismál bæði á íslensku og ensku
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka ígrundaða afstöðu til námskenninga og kenninga í uppeldis- og kennslufræði og vinna eftir þeirri hugmyndafræði sem honum finnst sannfærandi
    • geta tekið þátt í málefnalegri umræðu um uppeldismál og rökstutt afstöðu sína
    • taka þátt í skipulagi tómstundastarfs
    • vinna störf sem tengjast uppeldi og menntun
    Metin verða fjölbreytt verkefni nemenda, auk þess sem prófað verður úr sumum þáttum áfangans