Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425729384.05

    Yndislestur
    ÍSLE2YL05
    43
    íslenska
    Yndislestur
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Lesnar eru sex íslensk skáldverk sem nemendur velja sér af bókalista. Nemendur vinna lestraráætlun og bókaðir eru fastir tímar með kennara þar sem nemendur fara yfir efni bókanna og gera þeim góð skil.
    ÍSLE305SN05 eða ÍSLE3NA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi lestrar
    • mikilvægi þess að geta unnið aðalatriði úr texta á skýran og markvissan hátt
    • formi og inntaki skáldsögunnar
    • því hvernig skáldsaga getur endurspeglað samfélagið hverju sinni
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita helstu hugtökum bókmenntafræðinnar þegar verið er að fjalla um og greina skáldverk
    • greina frá og flytja skýra, vel uppbyggða kynningu á bókmenntaverki
    • koma auga á meginþætti skáldverka og dulin atriði sem skipta máli
    • taka þátt í og stuðla að málefnalegum umræðum eða rökræðum um bókmenntir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • dýpka lesskilning sinn
    • auka og bæta við orðaforða sinn og málskilning
    • auka skilning sinn og þekkingu á samfélaginu og mannlegu atferli í gegnum bókmenntir
    • auka færni sína í að túlka bókmenntaverk á sjálfstæðan og margvíslegan hátt