Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425729827.36

    Náms-og starfsfræðsla
    LÍFS1NS01
    39
    lífsleikni
    náms-og starfsfræðsla
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Áfanginn er ætlaður nemendum á lokaönn í skólanum. Áhersla er lögð á að nemendur geri sér grein fyrir framtíðarmöguleikum sínum, hvert þeir stefna eftir lok framhaldsskóla hvort sem það er frekara nám eða vinnumarkaðurinn. Nemendur átti sig á styrkleikum sínum, áhuga og hæfni þegar kemur að námi og störfum í framtíðinni. Nemendur kynnast kenningum sem tengjast áhuga og hvernig tekin er ákvörðun. Farið er í markmiðssetningu og hvernig markmiðum er fylgt eftir. Nemendur kynnast því hvernig leitað er upplýsinga um nám og störf bæði hérlendis og erlendis og læri að búa til búið til ferilskrá og fara í atvinnuviðtal. Nemendur fara í heimsókn í háskóla og fá heimsóknir frá stofnunum.
    Lokaönn nemenda
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvaða háskólanám er í boði á Íslandi
    • hvernig finna má upplýsingar um háskólanám erlendis
    • hvað atvinnulífið hefur upp á að bjóða og hvernig sótt er um vinnu
    • hvar áhugi viðkomandi nemenda liggur
    • hverjir eru styrkleikar nemenda
    • hugtakinu markmið og hvernig markmiðssetning getur hjálpað nemendum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • átta sig á eigin áhuga, styrkleikum og hæfni þegar kemur að námi og starfi
    • skoða námsleiðir innlands og erlendis
    • búa til ferilskrá og fara í atvinnuviðtal
    • setja sér markmið og fylgja þeim eftir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka upplýsta ákvörðun út frá eigin áhuga og markmiðum um framtíðaráform hvort sem það er frekara nám eða vinna
    • átta sig á fjölda námsleiða í háskólum landsins og erlendis og vera fær um að leita sér upplýsinga á heimasíðum háskóla
    • sækja um vinnu með góða ferilskrá og umsókn