Í áfanganum er viðfangsefnið bókmenntasaga frá 1880 til dagsins í dag. Ólíkar bókmenntastefnur og mismunandi textar eru rannsakaðir. Áfram eru nemendur þjálfaðir í ritun og lestri.
ÍSLE3ÍR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi bókmenntategundum og – hugtökum síðari alda
helstu einkennum íslensks máls sem nýtist í ræðu og riti
orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita bókmenntahugtökum
lesa texta frá ýmsum tímabilum
skrifa skýran, vel uppbyggðan texta á vönduðu máli með fjölbreyttum orðaforða
beita innsæi og ímyndunarafli í ræðu og riti
skilja og nota viðeigandi málsnið, stílbrögð og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera gagnrýninn í hugsun og hafa lýðræði, mannréttindi og jafnrétti að leiðarljósi
þroska bókmenntasmekk sinn og lesa sér til ánægju
átta sig á tilgangi og afstöðu textahöfundar og túlka dýpri merkingu texta
skilja menningu ólíkra tíma
rökræða bókmenntaverk, t.d. siðferðileg álitamál
átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum