Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425899101.44

    Umhverfis- og átthagafræði
    UMÁT1UN05
    1
    Umhverfis- og átthagafræði
    Umhverfisvernd og nærumhverfið
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn er hluti af almennum kjarna á náttúruvísinda- og félagsvísindabraut. Í áfanganum er fjallað um umhverfismál og áhrif einstaklinga á sjálfbæra þróun. Nemendur kynnast helstu umhverfisvandamálum og hvað móti tengsl manns og náttúru. Nærumhverfið skoðað út frá jarðfræði, landfræðilegum staðháttum og náttúrufari. Áhersla á hvernig umhverfi og náttúrufar mótar byggð á svæðinu (frá upphafi, þróun hennar og atvinnuhætti).
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu umhverfismálum sem eru í brennidepli á hverjum tíma
    • fjölbreyttum leiðum einstaklingsins til vistvænni lifnaðarhátta
    • áhrifum mannsins á umhverfi sitt, orsökum og afleiðingum og ábyrgð einstaklingsins
    • sögu svæðisins í ljósi samspils manns og umhverfis
    • ólíkum atvinnuháttum í gegnum aldirnar og áhrifum þeirra á byggðaþróun og nýtingu náttúruauðlinda á svæðinu
    • tengslum og samspili fortíðar og nútíðar
    • mikilvægi gagnrýninnar hugsunar
    • vinna með fjölbreyttar heimildir og koma vinnu sinni á framfæri á fjölbreyttan hátt
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina hagsmuni varðandi ágreining í umhverfismálum
    • að afla sér upplýsinga um umhverfismál í nærumhverfi og heimfæra á aðstæður í víðara samhengi
    • nýta fjölbreyttar heimildir til að tileinka sér náttúru og sögu svæðisins
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • mynda sér skoðanir í umhverfismálum og geti rökstutt þær
    • geti útskýrt áhrif mannlegrar breytni á nærumhverfið
    • beita gagnrýnni hugsun og greina orsakasamhengi atburða
    • setja sjálfan sig í samhengi sögunnar sem þátttakandi og skoðandi
    Ekki er gert ráð fyrir lokaprófi. Í námsmati er tekið mið af leiðsagnarmati, einstaklingsvinnu og hópverkefnum. Vettvangsferðum og viðtölum, kynningum og tjáningu.