Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425926650.89

    Föll og deildun
    STÆR3FD05
    46
    stærðfræði
    algengustu föll, deildun þeirra og helstu eiginleikar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Meginefni áfangans eru föll, markgildi og deildareikningur. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Föll: Veldisföll, vísisföll, lograföll, andhverf föll, samskeytt föll, eintæk, átæk og gagntæk föll. Markgildi og deildun: Markgildishugtakið, skilgreining á afleiðu falls, deildun veldisfalla, vísisfalla, lografalla og hornafalla. Einnig er farið í reiknireglur fyrir deildun margfeldis, ræðra falla og samskeyttra falla, samfeldni og deildanleika falla og aðfellur, hagnýtingu deildunar við könnun falla, s.s. að finna staðbundin hágildi og lággildi, einhallabil, beygjuskil og jöfnu snertils svo og gröf falla.
    STÆR2AF05 (STÆR2HV05 æskilegt)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • raunföllum, markgildum og deildun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með vísis- og lograföll með mismunandi grunntölum
    • finna andhverfur falla og að skeyta saman föllum
    • nota markgildi og skilgreiningu á afleiðu falls
    • deilda veldisföll, vísisföll, lograföll og hornaföll og nota reiknireglur fyrir deildun margfeldis, ræðra falla og samskeyttra falla
    • nota deildareikning við könnun falla, einkum að finna staðbundin útgildi, einhallabil, beygjuskil, jöfnu snertils
    • finna aðfellur og að teikna gröf falla og kanna samfeldni og deildanleika falla
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • velja þær aðferðir sem við eiga hverju sinni til að leysa verkefni og beita þeim
    • réttskrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega fyrir öðrum
    • fylgja og skilja röksemdafærslu í mæltu máli og í texta
    Námsmat byggist á stöðuprófum, verkefnum og lokaprófi.