Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425927363.31

    Heildun og deildajöfnur ( diffurjöfnur )
    STÆR3HD05
    47
    stærðfræði
    deildajöfnun, heildun, raðir, runur
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Meginefni áfangans eru heildun, heildunaraðferðir, flatarmáls- og rúmmálsreikningar með heildi, deildajöfnur af fyrsta stigi, runur og raðir. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Heildun: Stofnföll, ákveðið og óákveðið heildi, reiknireglur fyrir heildi, flatarmál svæða sem afmarkast af gröfum falla reiknað með heildun, hagnýting heilda, t.d. við lausn verkefna sem tengjast fjölda, magni, vegalendum og hraða, heildunaraðferðir, s.s. innsetning, hlutheildun og liðun í stofnbrot, rúmmál snúðs þegar snúið er um x –ás eða y – ás. Deildajöfnur: Fyrsta stigs deildajöfnur af ýmsum gerðum, notkun deildajafna við lausn hagnýtra dæma af ólíkum toga. Runur og raðir: Endanlegar og óendanlegar runur og raðir, jafnmuna- og jafnhlutfallarunur og raðir, samleitnar, óendanlegar jafnhlutfallaraðir, hagnýting runa og raða í verkefnum tengdum fjármálum og náttúruvísindum svo og sannanir með stærðfræðilegri þrepun.
    STÆR3FD05 og STÆR2HV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • heildun, fyrsta stigs deildajöfnum, runum og röðum, s.s. að framan greinir
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • finna stofnföll og beita heildunaraðferðum til að heilda flóknari föll
    • reikna ákveðin heildi og finna flatarmál og rúmmál með heildareikningi
    • greina á milli ólíkra gerða fyrsta stigs deildajafna og leysa þær með viðeigandi aðferðum
    • vinna með jafnmuna- og jafnhlutfallarunur og raðir
    • nota þrepunarlögmálið til þess að sanna að fullyrðing gildi um allar náttúrulegar tölur
    • leysa hagnýt dæmi þar sem nota má heildun, deildajöfnur eða runur og raðir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • velja þær aðferðir sem við eiga hverju sinni til að leysa verkefni og beita þeim rétt
    • skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega fyrir öðrum
    • fylgja og skilja röksemdafærslu í mæltu máli og í texta
    • leysa margvísleg viðfangsefni í öðrum námsgreinum og daglegu lífi
    Námsmat byggist á stöðuprófum, verkefnum og lokaprófi.