Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425993355.71

    Bókmenntir síðari alda
    ÍSLE3BS05
    91
    íslenska
    bókmenntir síðari alda
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er viðfangsefnið bókmenntasaga, bókmenntastefnur og bókmenntir síðari alda. Rómantík, raunsæi, nýrómantík og 20. öldin. Áframhaldandi þjálfun í ritgerðarsmíð og sköpun.
    ÍSLE3BF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
    • öllum helstu bókmenntahugtökum, mismunandi tegundum bókmennta og tímabilum
    • ritgerðarsmíð og heimildavinnu
    • helstu einkennum íslensks máls sem nýtast í ræðu og riti
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • túlka efni bókmenntatexta
    • koma efni frá sér á greinagóðan hátt, skriflega og munnlega
    • lesa sér til gagns og gamans og rýna í bókmenntatexta síðari tíma
    • beita bókmenntahugtökum
    • nýta sköpunargáfu og sýna sjálfstæði við úrvinnslu verkefna
    • beita innsæi og ímyndunarafli í ræðu og riti
    • skilja lykilhugtök og greina mismunandi sjónarmið
    • flytja vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • flytja vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
    • vera skapandi í skrifum sínum
    • beita gagnrýninni hugsun við lestur og hafa lýðræði, mannréttindi og jafnrétti að leiðarljósi við túlkun og úrvinnslu texta
    • átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
    • kynna eigin sjónarmið, tjá rökstudda afstöðu í umræðu og virða skoðanir annarra
    • túlka dýpri merkingu texta og færa rök fyrir máli sínu
    • leiðarljósi við túlkun og úrvinnslu texta
    • skrifa ritdóm
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.