Í áfanganum er farið bæði í bóklega og verklega þætti framhaldsþjálfunar hrossa. Nemandinn þjálfar hest markvisst. Nemandi og hestur koma fram á sýningum og/eða keppa í hestaíþróttum. Sjálfstæð vinnubrögð og ástundun.
HEST3ÞG03, REIM3ÞG05, FÓHE2FU03, VINH3SH02
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
reglur um keppni á íslenskum hestum
hvernig þjálfa skal hest og undirbúa fyrir keppni.
framhaldsþjálfun með tilliti til réttrar líkamsbeitingar hests
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna sjálfstætt og takar rétta ákvarðanir varðandi næstu stig þjálfunar hestsins.
nálgast fag sitt af ábyrgð og virðingu.
framfylgja þjálfunaráætlunum til að ná settum markmiðum.
nýta sér fjölbreyttar þjálfunaraðferðir við þjálfun gangtegunda.
sýna hest í keppni og/eða sýningum.
rýna í eigin vinnu og annarra með uppbyggilegri gagnrýni.
temja sér sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera meðvitaður um eigin getu og hafa faglegan metnað.
nýtt sér þekkingu á félagskerfi hestamennskunnar sér til gagns.
byggja upp og þjálfa hest m.a. til að taka þátt í sýningum og/eða keppni.
Námsmat er fjölbreytt og felst meðal annars í ýmsum verkefnum, prófum, jafningjamati og sjálfsmati.