Í áfanganum er farið í notkun póstforrita og samskiptaneta, Farið er í notkun forrita til að vinna með texta og í notkun forrita, til dæmis töflureikna, til að vinna með töluleg gögn, Fjallað er um aðferðir við að leita upplýsinga, sía úr, meta og vinna úr upplýsingum. Fjallað er um miðlun upplýsinga og kynnt forrit til að miðla upplýsingum. Farið er í reglur um höfundarétt og kennd er meðferð heimilda. Fjallað er um örugg netsamskipti og siðferði á netinu. Áhersla er á verkefnavinnu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu póst- og samskiptanetum
flóknum aðgerðum í helstu forritum til framsetningar og miðlunar á texta
umhverfi og möguleikum töflureiknis og meðferð tölulegra gagna
upplýsinga- og menningarlæsi og mikilvægi þess (þróað læsi)
höfundarétti og notkun heimilda
siðfræði og siðferði Internetsins (upplýsinga- og tölvusiðfræði)
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota markvisst póst- og samskiptanet
móta og setja fram texta á ýmsan máta og átta sig á læsileika hans
fara með töluleg gögn og setja þau fram
framkvæma flóknari aðgerðir í helstu forritum skrifstofuhugbúnaðar svo sem ritvinnslu, glærugerð og töflureikni
fara með heimildir og framsetningu þeirra
nýta netsamskipti á öruggan hátt
nota sjálfstæð vinnubrögð
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta, varðveita, skapa og miðla upplýsingum og þekkingu á skipulagðan og skilvirkan hátt (upplýsingalæsi)
vinna að mótun texta á ýmsan máta og stuðla að læsileika hans
vinna með heimildir eftir viðteknum venjum þar að lútandi og virða höfundarétt í vinnu með gögn af ýmsum toga
setja upp heimildaritgerð ásamt yfirlitum af ýmsu tagi, s.s. efnisyfirlit, mynda- og töfluyfirlit
setja upp viðskiptabréf/formbréf og nýta til þess tilbúin sniðmát
vinna með töluleg gögn, móta þau og setja fram á myndrænan hátt
nýta möguleika töflureiknis til útreikninga á flókinn máta
stunda örugg netsamskipti og sýna þar gott siðferði
vinna sjálfstætt að verkefnum og nýta borð-/far-/spjaldtölvu og snjallsíma sem tæki í námi og starfi