Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1426448864.03

    Yndislestur
    ENSK3YL05
    52
    enska
    Yndislestur
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn er ætlaður þeim nemendum sem hafa áhuga á lestri. Megináhersla er lögð á upplifun og skilning og að nemendur lesi sér til ánægju. Nemendur fá bókalista og velja sér fimm verk eftir enskumælandi höfunda. Þeir gera svo grein fyrir fjórum skáldsögum munnlega og skrifa ritrýni um eina. Ekki er gert ráð fyrir föstum kennslustundum.
    Hafa lokið 15 einingum á 2. Þrepi eða ENSK2OR05 og ENSK2OL05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • stjórnmálum, fjölmiðlum og sögu og áhrifum þeirra á þjóðfélagsmótun í þeim löndum þar sem tungumálið er talað
    • menningu þjóða þar sem tungumálið er talað sem og eigin menningu í alþjóðlegu samhengi
    • orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
    • hefðum sem eiga við um ritað mál t.d. mismunandi málsnið
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa, sér til ánægju eða upplýsingar, texta sem gera miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða og uppbyggingu eða myndmál og stílbrögð
    • nota tungumálið á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum
    • tjá sig af öryggi um margvísleg málefni
    • beita ritmálinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem við á og mætir hæfniviðmiðum þrepsins
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér umræður og rökræður um efni sem hann hefur þekkingu á
    • átta sig á mismunandi málsniði og stíl í rituðu máli
    • greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í bókmenntaverkum
    • leggja gagnrýnið mat á texta
    • hagnýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt
    • beita málinu án meiriháttar vandkvæða til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni
    • flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
    • lýsa skýrt og greinilega flóknum hlutum eða ferlum á sviði sem hann þekkir vel
    • beita rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
    • skrifa texta með röksemdafærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau vegin og metin
    • tjá tilfinningar, nota hugarflugið og beita stílbrögðum, t.d. myndmáli og líkingamáli
    Símat – munnleg próf og ritrýni.