Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1426455416.94

    Grunnáfangi B
    ÞÝSK1BB05
    35
    þýska
    Þýska 2
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun, þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu þýskumælandi landa. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Til að æfa þessi atriði geta eftirfarandi atriði legið til grundvallar í kennslunni: Stuttar frásagnir um hvað fólk gerir í fríi eða á ferðalögum, að lýsa borg og staðsetningu borga, að vísa til vegar, að sinna erindum í borginni, áhugaverðir staðir, svo og líkaminn, heilsa og lifnaðarhættir. Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig sem mest á þýsku í töluðu og rituðu máli. Einnig er lögð áhersla á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun.
    ÞÝSK1AA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
    • mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál og þekkja samskiptavenjur
    • grundvallarþáttum málkerfisins
    • formgerð og byggingu texta og mismuninum á töluðu og rituðu máli
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
    • lesa ýmiss konar texta um kunnugleg efni og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
    • bregðast við spurningum um efni sem hann þekkir og beita kurteisisvenjum og hljómfalli við hæfi
    • beita þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
    • skrifa einfaldan texta um efni sem hann þekkir og nota viðeigandi málfar
    • fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
    • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi sínu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá sig um hugðarefni sín og áhugamál
    • tjá sig um liðna atburði
    • miðla efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á
    • tjá skoðanir og tilfinningar
    • takast á við kunnuglegar aðstæður í almennum samskiptum og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
    • lesa texta af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína
    Fjölbreytilegt námsmat. Allir fjórir færniþættir tungumálsins eru metnir, þ.e. tal, ritun, hlustun og lestur.