Í áfanganum er unnið með hugtökin rými, tvívídd, þrívídd, ljós, skuggi og myndbygging auk annarra hugtaka sem tengjast skúlptúrum og þrívíðum verkum. Leitast verður við að kynna nemandanum fjölbreytta þrívíða vinnu og að hann skoði hvernig koma má tvívíðum skissum í þrívítt form. Unnið verður með ýmis efni s.s., pappír, leir, gifs, vír, garn, ullarflóka, léreft o.fl. Nemandinn heldur utan um skissur, hugmyndir, prufur og þróunarvinnu sína og setur fram með skipulögðum hætti. Auk þessa vinna nemendur rannsóknarverkefni í hópum sem þeir kynna fyrir samnemendum sínum.
MYNL2HU05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtökum s.s. þrívídd, skúlptúr, lágmynd, myndbygging og rými
eigin vinnuferli frá hugmynd að fullunnu verki
grunnaðferðum afsteyputækni
þrívíðri myndlist í nærumhverfinu og þekki höfunda hennar
ýmsum stefnum og stílbrigðum í þrívíðri myndlist
helstu efnum og aðferðum í gerð þrívíðra myndverka
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
móta verk í þrívídd með mismunandi aðferðum
vinna þrívítt útfrá tvívíðum skissum
beita mismunandi aðferðum og tækni í tilraunum og skissugerð
meðhöndla efni og verkfæri til þrívíðrar myndsköpunar
þróa þrívíð verk út frá eigin hugmyndum og tilraunum
beita aðferðum sem nýtast í hugmyndavinnu, framsetningu verkefna og skipulagningu á verkferli og útfærslu verka sinna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
ræða um og rökstyðja þær hugmyndir sem hann túlkar í verkum sínum
velja efni við hæfi til úrvinnslu þrívíðra verka
sýna áræðni og frumkvæði við útfærslu í þrívíðri vinnu
nýta sér sköpun, ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar við þróun hugmynda, skissuvinnu og úrvinnslu
fjalla um og meta eigin verk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt og gera grein fyrir forsendum
greina áherslur og stílbrigði merkingar í rýmis- og efnisnotkun þekktra listamanna
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.