Áfanginn er verklegur. Markmið áfangans er að nemandi fræðist um hlaup og stuðla skal að því að nemendur geti sjálfir ræktað líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju með hlaupum
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi hreyfingar
áhrifum hlaupa á líkamann
líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu
leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt við daglegar athafnir
notkun púlsmæla
gildi samvinnu, umburðarlyndis og virðingar
forvarnargildi líkamsræktar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
hlaupa og velja sér góðar hlaupaleiðir
hreyfa sig sér til heilsubótar og ánægju
nýta sér tæknina til að hreyfa sig meira
taka tillit annarra og hvetja þá
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stunda hreyfingu án mikils tilkostnaðar
sýna öðrum virðingu við leik, keppni, nám og störf
vinna að bættri heilsu í samvinnu við aðra
styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í hlaupum
gera hreyfingu að lífsstíl
Getur farið fram með margvíslegum hætti, m.a. með verklegum færniprófum og hægt er að meta mætingu og virkni