Áfanginn er verklegur og markmið hans er almenn hreyfing. Í áfanganum er körfubolti leikinn sér til ánægju og heilsuræktar. Kynntar er helstu reglur íþróttarinnar. Nemendur eru hvattir til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu leikreglum og grunnatriðum greinarinnar
mikilvægi hreyfingar
líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu
leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt við daglegar athafnir
gildi samvinnu, umburðarlyndis og virðingar í leik, keppni og starfi
forvarnargildi líkamsræktar
mikilvægi upphitunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma grunntækni í greininni
leika körfubolta sér til heilsubótar og ánægju
vinna með öðrum að lausnum verkefna
taka tillit til annarra og hvetja þá
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stunda hreyfingu án mikils tilkostnaðar
sýna öðrum virðingu við leik, keppni, nám og störf
vinna að bættri heilsu í samvinnu við aðra
styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í greininni
gera hreyfingu að lífsstíl
Getur farið fram með margvíslegum hætti, m.a. með verklegum færniprófum og hægt er að meta mætingu og virkni