Kynntar eru hinar ýmsu hliðar vöruhönnunar og farið í hvernig hönnunarferli er unnið, frá rannsókn, í gegnum greiningu, hugmyndavinnu og tæknilegar útfærslur, að endanlegri vöru. Nemendur munu læra að skrá allt ferli vinnu sinnar, smíða mismunandi tegundir módela og kynnast því hvernig æskilegt er að setja fram og kynna sínar tillögur að vörum.
Lögð er áhersla á að virkja sköpunargáfu nemandans og að nemandinn öðlist færni í að vinna og þróa eigin hugmyndir.
Að hafa lokið 25 einingum á 2. þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig vörur verða til, bæði hugmyndafræðilega og framleiðslulega
þeirri vinnu sem er á bakvið hverja hannaða vöru
hversu miklu máli skiptir að byggja hönnun sína á vel gerðri forvinnu
hversu mikilvægt er að vinna vinnuna sína vel og hafa augu og eyru opin
úr hvaða efnum og með hvaða aðferðum væri mögulegt og/eða æskilegt að framleiða þeirra eigin hönnun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota fjölbreyttar leiðir til að afla upplýsinga í rannsóknarvinnu
beita gagnrýninni hugsun við mat á eigin hugmyndum og annarra
tala um sínar hugmyndir og hlusta á gagnrýni
smíða módel af vörum með mismunandi aðferðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna úr eigin rannsóknum og greina upplýsingar til að hanna vöru
velja viðeigandi efni og módelsmíðaaðferð fyrir sína hönnun
prófa nýjar og fleiri leiðir við að hugsa og afla sér upplýsinga
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.