Áfanginn er bóklegur. Í áfanganum er farið í áhrif líkamsræktar á líkama og sál. Einnig er farið yfir mikilvægi upphitunar og hvaða áhrif hún hefur á líkamann. Að auki er fjallað um þolstyrktar- og liðleikaþjálfun og hvernig best sé að byggja upp og viðhalda þeim eiginleikum. Þá verða einnig kynntar aðferðir við að mæla þol, styrk og liðleika. Farið verður yfir mikilvægi næringar og forvarna ásamt því að nemendur læri að taka ábyrgð á eigin heilsurækt.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi næringar og forvarna
þoli og mismunandi þolþjálfun
áhrifum líkamsræktar á líkamann
fjölbreytilegum möguleikum til heilsuræktar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta eigið líkamsástand
búa til sitt eigið æfingarprógramm
reikna út æfingapúls
beita mismunandi aðferðum til að mæla þol, styrk og liðleika
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja saman næringu, líkamsrækt og forvarnir
framkvæma eigin þjálfáætlun sem miðar að því að efla eigin heilsu