Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: Thu, 26 Mar 2015 09:44:35 GMT

    Kynjafræði
    KYNJ1KY05
    5
    kynjafræði
    Kynjafræði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Fjallað er um stöðu kynjanna á ýmsum sviðum samfélagsins, svo sem innan fjölskyldunnar, á vinnumarkaði, í menntakerfinu, stjórnmálum, íþróttum, félagslífi, fjölmiðlum o.fl. Einnig er fjallað um kynbundið ofbeldi og klámvæðingu. Leitast er við að svara spurningum eins og: Hvernig er staða kynjanna ólík? Af hverju? Er þörf fyrir breytingar? Nemendur læra að beita hugtökum kynjafræðinnar. Meðal markmiða áfangans er að vekja nemendur til meðvitundar um réttindi sín og að þeir þjálfist í að greina samfélagið með kynjagleraugum. Einnig er fjallað um sögu jafnréttisbaráttunnar og það hvernig jafnréttismál varða alla, nú sem fyrr. Nám og kennsla fer fram með fyrirlestrum, fjölbreyttum hóp- og einsaklingsverkefnum, umræðum, gagnaleit og myndböndum. Umræður og þátttaka nemenda er lykilatriði í öllu náminu. Lögð er áhersla á að skoða kynja- og jafnréttismál sem eru á döfinni hverju sinni t.d. í fjölmiðlum.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • stöðu kynjanna í samfélaginu
    • á birtingarmyndum kynjaskekkju í nærsamfélagi og frá alþjóðlegu sjónarhorni
    • helstu hugtökum jafnréttismála
    • mismunandi mótun kynjanna út frá menningu, umhverfi og tíma
    • staðalmyndum um kvenleika og karlmennsku
    • að jafnréttismál varða allt samfélagið
    • samtvinnun mismunabreyta
    • klámi og áhrifum þess á kynheilbrigði
    • kynbundnu ofbeldi og mörgum birtingarmyndum þess, svo sem mansali og kynferðislegu ofbeldi
    • réttindum er varða jafnréttismál
    • áhrifum jafnréttisbaráttunnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • útskýra hugtök kynjafræðinnar
    • líta á samfélagið frá sjónarhorni kyns og kyngervis með gagnrýnum augum
    • greina stöðu og staðalmyndir kynjanna á mörgum sviðum samfélagsins
    • rýna í menningu og átta sig á stöðu kynjanna eins og hún birtist þar
    • greina goðsagnir varðandi kynjamun og kynímyndir í samfélaginu
    • koma skoðunum sínum og hugmyndum á framfæri
    • afla upplýsinga um jafnréttismál
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina áhrif kynferðis á líf sitt og annarra
    • tengja menningu samfélagsins, gildi og verðmæti við eigið líf
    • hafa skýra sjálfsmynd og gera sér grein fyrir hvernig hann getur hagnýtt sterkar hliðar sínar á skapandi hátt óháð kyni
    • ber virðingu fyrir lífsgildum, mannréttindum og jafnrétti
    • setja sig í spor annarra og ígrunda viðhorf sín
    • taka þátt í samræðum um jafnrétti á sjálfstæðan og rökréttan hátt
    • getur tjáð hugsanir sínar og tilfinningar í tengslum við jafnrétti í rökréttu samhengi
    • taka ábyrga afstöðu til jafnréttismála
    • taka virkan þátt í samfélaginu, fjölskyldulífi og atvinnulífi með jafnrétti að leiðarljósi
    Verkefnamiðað