Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1427793755.91

    Stærðfræði - Algebra og rúmfræði
    STÆR2AR05(SB)
    68
    stærðfræði
    algebra, rúmfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    SB
    Í áfanganum er farið í undirstöðuatriði algebru, veldi, veldareglur og rætur. Einnig er farið í föll, gröf falla og hagnýt verkefni eru leyst. Hagnýting prósentu- og vaxtareiknings. Hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi og einslögun
    Nemandi hafi lokið stærðfræði með einkunnina 8 eða hærra úr grunnskóla eða hafi lokið undirbúningsáfanga
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • undirstöðuatriðum algebru
    • veldum, veldareglum og rótum
    • fallhugtakinu og túlkun grafa
    • prósentu og vaxtareikningi
    • hornaföllum í rétthyrndum þríhyrningi og einslögun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með einslögun og hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi
    • leysa hagnýt verkefni í prósentu- og vaxtareikningi
    • teikna upp fall út frá gildatöflu og lesa út úr grafinu ýmsar upplýsingar
    • beita velda- og rótarreglum
    • beita reglum sem gilda í bókstafareikningi, sbr. að þátta, liða og leysa jöfnur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • setja margskonar verkefni upp með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
    • beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstyðja aðferðir sínar
    • beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstyðja aðferðir sínar
    • skrá lausnir sínar skipulega og skiptast á skoðunum um þær við aðra
    • átta sig á tengslum aðferða við framsetningu
    • beita frumkvæði, innsæi og frumleika við lausn verkefna
    • nýta sér stærðfræðikunnáttuna í daglegu lífi
    Byggist á fjölbreyttu námsmati, m.a. heimaverkefnum, hópverkefnum, smærri verkefnum, prófum og virkni í tímum