Í áfanganum er fjallað um list sem tjáningarform og tæki til að skapa margvísleg áhrif og þá menningarþætti sem mótað hafa listsköpun mannsins í gegnum tíðina. Nemendur rannsaka ólíka þætti listalífsins, svo sem myndlist, handverk, hönnun, tónlist, dans, leiklist og kvikmyndagerð og skoða tilgang og áhrif lista í nútíð og fortíð. Jafnframt eru skoðuð áhrif lista og skapandi greina á atvinnu og nýsköpun. Lögð er áhersla á menningar-, félags-, náttúru- og heimspekilegar tengingar við viðfangsefnin. Markmiðið er að nemandinn öðlist hæfni til að tengja sig við þá menningu sem hann er hluti af og öðlist skilning á hvernig menning og listir tengjast atvinnusköpun og samfélagsþróun. Nemendur vinna að rannsóknum á afmörkuðum viðfangsefnum lista og menningar með ábyrgum og sjálfstæðum hætti.
grunnskólapróf
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
rótum, áhrifum og tilgangi lista og menningar í nútíma samfélagi og í sögulegu samhengi
menningarlegu og samfélagslegu gildi lista
áhrif lista og skapandi greina á atvinnulíf og efnahag
uppbyggingu, aðferðum, hugtökum og sérkennum mismunandi listgreina
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tengja margvíslegar listir og listform við menningu, samfélag, náttúru og tækni
skoða og meta eigin gildi og viðhorf til margvíslegra listforma
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja samspil menningar, sögu, tækniþróunar og listsköpunar
skilja hlutverk menningar og sköpunar í eflingu skapandi greina
tengja sig við þá menningu sem hann er hluti af
fjalla um, greina og tjá sig á skýran, ábyrgan og gagnrýninn hátt um listsköpun
vera meðvitaður um ólíka upplifun og skoðanir á mismunandi listformum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.