Áfanginn er inngangur að náttúruvísindum. Í honum er lögð áhersla á hvað einkennir vísindalega hugsun og vinnubrögð náttúruvísinda. Fjallað er um hvernig maðurinn notar hinar ýmsu náttúruvísindagreinar, s.s. líffræði, jarðfræði, efnafræði og eðlisfræði til að auka skilning sinn á náttúrunni og heiminum. Farið er í samspil nýtingar náttúruauðlinda, einkenni fræðigreinanna og tækniþróunar. Samtímis er horft til mikilvægis þess að umgangast náttúruna af virðingu. Lögð er áhersla á að tengja viðfangsefni við daglegt líf nemenda með það fyrir augum að auka áhuga þeirra og skilning á náttúruvísindagreinum og samfélagslegu gildi þeirra. Nemendur æfast í að afla og lesa upplýsingar um náttúrufræðilegt efni, skipuleggja og framkvæma athuganir, skrá og meta niðurstöður auk þess að miðla þeim á fjölbreyttan hátt.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu einkennum náttúruvísindagreina, s.s. eðlisfæði, efnafræði, líffræði og jarðfræði og tengingu þeirra við daglegt líf
tækninýjungum sem tengjast mismunandi náttúruvísindagreinum
helstu hugtökum sem varða náttúruvísindi daglegs lífs
samspili manns og náttúru
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa og ræða texta um náttúruvísindi
framkvæma einfaldar vísindalegar athuganir
nýta margmiðlunarefni, gagnabanka, leitar- og samskiptavefi um náttúruvísindalegt efni á gagnrýninn hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja hvað einkennir vísindalega hugsun og vinnubrögð náttúruvísinda
skilja hvernig maðurinn notar hinar ýmsu náttúruvísindagreinar, s.s. líffræði, jarðfræði, efnafræði og eðlisfræði til að auka skilning sinn á náttúrunni og heiminum
geta á gagnrýninn hátt metið gildi upplýsinga um umhverfi, náttúru og tækni
geta rökrætt álitamál er varða umgengni við náttúruna, tækni og nýjustu vísindi
geta tekið afstöðu til verndunar og nýtingar náttúruauðlinda
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.