Í þessum áfanga verður fjallað um ýmsar tegundir fagurbókmennta og birtingarform þeirra. Nemendur vinna fjölbreytt og skapandi verkefni í tengslum við eigin verk og annarra sem fela t.d. í sér ýmis konar umskrifun, túlkun og framsetningu. Nemendur afla sér heimilda um ýmislegt sem tengist viðfangsefni áfangans og almennri bókmenntafræði. Nemendur þreifa sig áfram með eigin texta af ýmsu tagi og skyggnast með þeim hætti inn í heim rithöfunda og skálda. Þeir spreyta sig jafnframt á því að skrifa stór og smá bókmenntaverk á ýmsu formi, bæði að eigin vali og í samráði við kennara. Áhersla er á að nemendur sýni frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð, öðlist víðsýni og beiti gagnrýnni hugsun. Nemendur vinna ýmist hver fyrir sig eða með öðrum.
10 einingar í íslensku á 2. þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi tegundum fagurbókmennta og helstu stefnum í íslenskum bókmenntum
öllum helstu bókmenntahugtökum og stílbrögðum sem notuð eru við bókmenntagreiningu
orðaforða sem nægir til að lesa og vinna með helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
helstu einkennum íslensks máls sem nýtast í ræðu og riti
heimildanotkun í tengslum við verkefnavinnu og gildi mismunandi heimilda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa algengustu tegundir bókmenntatexta
beita algengum stílbrögðum í tal- og ritmáli
skilja lykilhugtök og mismunandi sjónarhorn í bókmenntum
draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum og meta áreiðanleika þeirra
flytja af öryggi lýsingar og kynningar á verkefnum sínum, hver fyrir sig og með öðrum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja, greina og tengja bókmenntatexta við ríkjandi stefnur í listum á hverjum tíma
skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta, á vönduðu og blæbrigðaríku máli
taka þátt í málefnalegum umræðum, tjá afstöðu sína og efasemdir um efnið og komast að rökstuddri niðurstöðu
draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta
átta sig á samfélagslegum og bókmenntasögulegum skírskotunum, duldum boðskap og hugmyndum
velja ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
vinna skapandi verkefni í tengslum við námsefnið
nýta sér heimildir af ýmsum toga í tengslum við námsefni og verkefnavinnu
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum við úrvinnslu og skil á verkefnum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.