Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1428488207.94

    Undirstöðuatriði tölfræði
    STÆR2UT03
    85
    stærðfræði
    tölfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Gagnasöfn, flokkun og einkennishugtök um þau. Tíðni, tíðnidreifing og myndrit. Dreifing og stærðir sem einkenna dreifingu gagnasafna. Helstu hugtök varðandi talningu, líkindi og líkindadreifingu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu talningarreglum, algengum líkindareikningi og líkindadreifingum, s.s. tvíkostadreifingu, normaldreifingu
    • grundvallaratriðum tölfræði, s.s. meðaltölum, fylgni, dreifingum og frávikum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla tölur og talnamengi
    • nota reikniforrit við tölfræðilega útreikninga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
    • leggja mat á hvort niðurstöður reikninga og athugana séu í samræmi við viðfangsefnið
    Lokapróf og annareinkunn