Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1428494049.61

    Ítalska 4
    ÍTAL1DD05
    3
    ítalska
    Ítalska 4
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Unnið er sem fyrr með lesskilning, tal, hlustun og ritun, nemendur vinna með ýmis þemu tengd land og þjóð. Þeir læra og þjálfast í meira krefjandi orðaforða og tileinka sér ný og flóknari málfræðiatriði.
    ÍTAL1CC05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • meiri og flóknari orðaforða en áður
    • góðum framburði, áherslum og hljómfalli tungumálsins
    • meginatriðum ítalskra málfræði
    • Ítalskri menningu
    • skilja talað mál, þar sem talað er um ýmis málefni
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja texta af ýmsum gerðum, eins og t.d. smásögur og skáldsögur sem sérstaklega eru samdar fyrir nemendur (léttlestrarbækur). Einnig að geta lesið sér til gagns blaðagreinar og ýmsar upplýsingar eða leiðbeiningar
    • skrifa lengri texta en áður, t.d. bréf, útdrætti úr bókum eða kvikmyndum, stutta leikþætti og myndatexta
    • nýta sér málfræðikunnáttu, bæði til að skrifa og tala
    • vinna sjálfstætt og með öðrum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tileinka sér innihald texta og skilja það sem sagt e
    • tjá sig um það sem hann hefur lesið eða heyrt og notað til þess flóknari orðaforða en áður, eins og t.d. ýmis orðatiltæki
    • túlka og leggja mat á aðstæður sem upp koma
    • skrifa lengri og flóknari texta en áður
    Vinna á önninni 50% Lokapróf 50%