Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1428604468.69

    Málun
    MYNL3BM05
    6
    myndlist
    Málun og vinnubók
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Málun með akrýllitum. Unnið með hugmyndir, prufur, skissur, skoðaðir litir, litablöndun, litasamsetningar, áferðir, pensilstrokur og stílar. Máluð kyrralífsmynd í 3 vídd. Þá er unnið með klippimyndir og málun og síðast frjálsa málun. Samtímis þessu vinna nemendur jöfnum höndum í vinnubók; heimavinnuverkefni, rannsóknarverkefni, hugmyndavinnu, undirbúning fyrir málverk og gera grein fyrri vettvangsferðum.
    MYNL2AT05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • stöðu málverksins í sögulegu ljósi.
    • ólíkum leiðum við gerð málverka.
    • mikilvægi hugmynda og aðdraganda við gerð myndverka.
    • hvar og hvernig má nálgast upplýsingar og þekkingu um menningu og sjónlistir.
    • hvernig má miðla og njóta lista og menningar í víðum skilningi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • mála í þrívídd.
    • beita ólíkum nálgunarleiðum við gerð myndverka.
    • beita pensli og litum til að tjá sig.
    • finna upplýsingar um sýningar, söfn og listafólk og geta kynnt fyrir öðrum á myndrænan hátt.
    • tala/skrifa um list og listsýningar faglega og út frá eigin brjósti og rökstyðja skoðanir sínar.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • efla athygli og gagnrýna hugsun
    • efla frumkvæði og sköpun.
    • vinna skapandi á frumlegan hátt að eigin myndverkum.
    • njóta lista og menningar.
    Í kennslustundum er símat í gangi í formi samtals við hvern einstaka nemanda meðan þeir eru að vinna. Kennarinn tekur vinnubækurnar 2-4 sinnum á önn til að fara yfir heimaverkefni, nokkur menningarverkefni, umfjöllun um sýningar og aðra frjálsa myndsköpun nemenda. Endurgjöf á skriflegu formi. Síðast fá nemendur sundurliðað einkunnablað þar sem vinna vetrarins, verkefni og vinnubók/skissubók eru metin til einkunnar í tölustöfum á kvarðanum frá 1-10.