Er guð til? Af hverju er til eitthvað frekar en ekkert? Hvernig vitum við að veruleikinn er eins og hann birtist okkur? Hvað er þekking? Hvað er sannleikur? Hvað er vitund?
Í áfanganum verða teknir fyrir valdir þættir í vestrænni heimspekisögu frá Grikklandi til forna fram að lokum 20. aldar. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu í þróun heimspeki í gegnum mannskynssöguna ásamt grundvallarskilningi á helstu heimspekikenningum sem hafa mótað viðhorf mannsins til siðferðis, frelsis, guðs og eðli heimsins í kringum hann. Ásamt völdu lesefni verður notast við bíómyndir, tónlist og myndbrot úr dægurlífinu.
Áhersla er lögð á sjálfstæða hugsun og sjálfstæð vinnubrögð, nemendur eru hvattir til að horfa með gagnrýnum augum á námsefnið jafnt sem eigin skoðanir og viðhorf. Mikil áhersla verður lögð á umræður í tímum og því er góð mæting mjög mikilvæg. Verkefnavinna miðar að því að nemendur öðlist hæfni til að nýta eigin þekkingu og reynslu við úrlausn nýrra viðfangsefna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
völdum heimspekingum og heimspekikenningum frá Forn Grikklandi til okkar tíma
mikilvægi gagnrýnnar hugsunar
undirstöðuatriðum heimspekilegrar hugsunar
lestri heimspekitexta
heimspekilegum samræðum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa heimspekitexta
endursegja og skýra heimspekilega texta
beita gagnrýnni hugsun
meta eigin rök og annarra
tjá sig heimspekilega og hlusta á aðra
tengja heimspeki við eigin reynslu og veruleika.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta miðlað torskildum fróðleik á skýran hátt
geta beitt gagnrýnni hugsun á markvissan hátt á öllum sviðum lífsins
geta borið saman ólíkar skoðanir og rök til að komast að sameiginlegri niðurstöðu
geta tileinkað sér nýja þekkingu á markvissari hátt
skilja betur heiminn og samfélagi sem hann býr í
beita heimspekilegum hugmyndum til þess að leysa úr siðferðislegum vandamálum.
Símat. Fjölbreytt verkefni, kaflapróf, ritgerð og virkni í tímum er metið jafnt og þétt yfir önnina.