Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1428942565.66

    Grunnáfangi
    EÐLI2GÁ05
    31
    eðlisfræði
    grunnáfangi
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum fyrsta áfanga í eðlisfræði er byrjað á því að láta nemendur vinna með hugtök og þekkingu úr grunnatriðum aflfræði og ljósgeislafræði. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru í þessari grein. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu.
    STÆR2FJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • því hvað felst í vísindalegri aðferð.
    • SI-kerfinu og SI-einingum stærða sem unnið er með.
    • helstu hugtökum sem notuð eru í hreyfifræði, aflfræði og ljósgeislafræði.
    • einföldum kraftmyndum, sérstaklega í skáplani og láréttu plani.
    • hreyfilögmálum Newtons.
    • vélrænni orku og heildarorku, ásamt varðveislu þeirra.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fara með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum.
    • beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi.
    • leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir samband stærða frá gefnum forsendum.
    • framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum þeirra.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum.
    • nota námsefni og gögn á markvissan hátt.
    • yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið.
    • meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar.
    • tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar.
    Verkefni og próf.