Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429001361.46

    Almenn markaðsfræði
    MARK2AM05
    4
    markaðsfræði
    almenn markaðsfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Kynnt eru grundvallarhugtök og meginviðfangsefni markaðasfræðinnar. Áhersla er lögð á að auka skilning nemenda á gildi markaðsstarfs fyrir neytendur, fyrirtæki og samfélagið í heild. Leitast er við að nemendur tileinki sér markaðslega hugsun. Fjallað er um söluráðana og samval þeirra við markaðssetningu. Nemendum er kynnt helstu atriði er varða umhverfi fyrirtækja, markaðshlutun og vinnuferli skoðuð við markaðssetningu Einnig er afstaða fyrirtækja til markaðarins.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tilgangi og hugmyndafræði markaðsfræðinnar
    • þýðingu markaðsstarfs fyrir fyrirtæki og samfélag
    • hugtökum og hugmyndum varðandi vöruþróun og vörur
    • samvali söluráða
    • kaupvenjum á neytenda – og fyrirtækjamarkaði
    • mikilvægi markaðshlutunar í öllu markaðsstarfi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa í markaðinn
    • beita samvali söluráða á árangursríkan hátt
    • lesa í kaupvenjur einstaklinga og fyrirtækja
    • framkvæma markaðshlutun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta nýtt sér þekkinguna til að meta markaðsumræðuna ...sem er metið með... verkefnum og prófum
    • geta lesið í áreiti frá markaðnum á gagnrýninn hátt ...sem er metið með... verkefnum og prófum
    Nemendur þurfa að vinna mörg verkefni í áfanganum þar sem kennslan fer aðallega fram með verkefnavinnu nemenda. Námsmatið er mat á þessari vinnu ásamt tímaprófum og lokaprófi.