Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429003115.86

    Bein og vöðvar
    ÍÞRF2BV05
    9
    íþróttafræði
    bein og vöðvar
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandi læri um starfsemi mannslíkamans með áherslu á bein og vöðva. Sérstök áhersla verður lögð á þau líffæri og líffærakerfi sem tengjast hreyfingum mannslíkamans. Fjallað verður um bein, bönd og liðamót, liðfleti og liðpoka. Einnig verður fjallað um hreyfingu í liðamótum og stefnu hreyfinga. Fjallað verður um einstaka vöðva, upptök þeirra, festu og starf. Fjallað er um hugtök og grundvallaratriði hreyfifræðinnar og komið inn á tækni íþróttagreina. Áfanginn byggir að stórum hluta á starfrænni hreyfifræði, þ.e. hvernig vöðvar, bein og liðamót líkamans koma við sögu í fjölbreyttum hreyfingum. Nemendur gera æfingar með og án áhalda til að auka skilning sinn á því hvernig ákveðnar hreyfingar myndast í íþróttum. Enn fremur er fjallað um rétta lyftitækni, starfsstellingar og hreyfingar við vinnu.
    ÍÞRF2ÞJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu vöðvum og vöðvahópum líkamans
    • hlutverki beinagrindar og hreyfingum helstu liðamóta
    • beinum, böndum og liðamótum
    • helstu lögmálum hreyfifræðinnar
    • réttri lyftitækni
    • réttum starfsstellingum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • finna lýsandi æfingar fyrir þjálfun einstakra vöðva og vöðvahópa
    • útskýra hreyfingar líkamans með tilliti til lögmála hreyfifræðinnar
    • greina mismunandi álag á bein, bönd og liðamót
    • taka lögmál hreyfifræðinnar með sem forsendur þegar unnið er að gerð æfingaáætlunar
    • lyfta rétt og vera meðvitaður um réttar starfsstellingar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • starfa með börnum og unglingum við íþróttaiðkun út frá líffræðilegum forsendum
    • gera sér grein fyrir áhrifum mismunandi æfinga sem þarf að gera til að styrkja ákveðna líkamshluta
    • beita líkamanum á sem hagkvæmastan og áhrifaríkastan hátt
    • skilja viðbrögð og aðlögun líkamans við þjálfun
    Verkefnavinna og lokapróf.