Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429004848.15

    Kvikmyndir og ljósmyndir
    FJÖL3KL05
    5
    fjölmiðlafræði
    kvikmyndir og ljósmyndir
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum áfanga er farið í sögu kvikmynda og ljósmynda frá upphafi . Ýmis félagsleg og menningarleg áhrif miðlanna eru skoðuð. Farið verður lítilega í tæknilega þætti, bæði í sögulegu samhengi og í hagnýtri útfærslu. Nemendur taka ljósmyndir og vinna með þær. Nemendur taka stuttmynd og/ eða greina kvikmynd út frá fræðilegum viðmiðunnarramma.
    FÉLV2AF05 eða ÍSLE2MG05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sögu mynda , gildi og áhrifum myndmálsins
    • þróun mynda í grófum dráttum frá upphafi
    • sögu ljósmyndunar á Íslandi
    • sögu kvikmyndunar á Íslandi
    • verkum valdra erlendra ljósmyndara og sögu erlendrar kvikmyndunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina myndir frá ólíkum tímum
    • greina ljósmyndir í menningarmiðlum
    • greina kvikmyndir út frá ólíkum tímaskeiðum og kvikmyndastefnum
    • greina fagmál kvikmynda
    • geta unnið með heimildir á faglegan og ábyrgan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta tekið ljósmyndir á faglegan hátt ...sem er metið með... verkefnum
    • geta gagnrýnt ljósmyndir á faglegan hátt ...sem er metið með... verkefnum og munnlegri framsögn
    • nota fagmál kvikmynda við gerð stuttmynda (örmynda) ...sem er metið með... verkefnum
    • greina hvernig bæði ljósmyndir og kvikmyndir hafa áhrif á hugarfar og hegðun fólks ...sem er metið með... verkefnum
    • geta greint myndmál valinna kvikmynda í sögulegu ljósi ...sem er metið með... verkefnum
    • geta fylgst með og hagnýtt nýja tækni í miðlun ...sem er metið með... verkefnum
    Þetta er símatsáfangi. Ferilmappa er í áfanganum og margvísleg verkefni eru unnin.