Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist nútímabókmenntum frá 20. öld, með áherslu á seinni hluta 20. aldar og fram til dagsins í dag. Nemendur lesa skáldsögur, smásögur og ljóð tímabilsins og vinna fjölbreytt verkefni í ræðu og riti.
10 einingar á 2. þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
inntaki og einkennum þeirra verka sem lesin eru
ritgerðarsmíð og heimildavinnu
helstu einkennum íslensks máls sem nýtast honum í ræðu og riti
orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
helstu bókmenntastefnum sem tengjast viðfangsefninu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrifa ritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og vandaðan hátt í blæbrigðaríku máli
ganga frá texta til birtingar
nýta sér uppbyggilega gagnrýni annarra
skilja og nota viðeigandi stílbrögð og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
nýta sköpunargáfu við vinnslu skapandi verkefna
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
túlka og bera saman bókmenntaverk og setja þau í sögulegt samhengi
skrifa skýran og vel uppbyggðan texta
velja ritstíl sem hæfir aðstæðum og viðtakendum
leggja mat á og efla eigin málfærni og annarra
tjá rökstudda afstöðu
taka virkan þátt í umræðum
Fjölbreytt námsmat sem byggir á prófum og verkefnum.