Farið er í flóknari útreikninga en í fyrri áföngum. Meðal þess sem nemendur glíma við eru flatar- og rúmmálsreikningur, hlutfallareikningur og gerð magn- og kostnaðaráætlana.
IÐNR2EL05 (IRM2A05)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
flatar- og rúmmálsreikningi.
prósentureikningi og öðrum hlutfallsreikningi.
útreikningum á drifhlutföllum.
útreikningi á skífustærðum og snúningshraða.
þyngdarreikningi á málmhlutum.
varmaútreikningum.
magntöku og gerð kostnaðaráætlana.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma helstu útreikninga sem blikksmiðir nota við störf sín.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
reikna út flatar- og rúmmál.
framkvæma prósentureikning.
reikna stærðarhlutföll á hlutum og hlutföll á teikningum.
reikna út stærðir á drifum.
magntaka samkvæmt teikningu og gera einfalda kostnaðaráætlun.
reikna út stærðir á hiturum.
Verkefnavinna og próf. Kostir leiðsagnarmats eru nýttir.