Bókmenntasaga frá nýrómantík til aldamóta, 1903-2000
ÍSLE3NA05
71
íslenska
Nýrómantík til aldamóta
Samþykkt af skóla
3
5
Í áfanganum verður viðfangsefnið bókmenntasaga 20. aldar, bókmenntastefnur og mismunandi textar lesnir. Haldið verður áfram að þjálfa nemendur í ritun.
ÍSLE2ES05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ritgerðasmíð
orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
helstu bókmenntahugtökum, mismunandi tegundum bókmennta og tímabilum í íslenskum bókmenntum síðari alda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrifa ritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinargóðan hátt á blæbrigðaríku máli
ganga frá texta og að nýta sér uppbyggilega gagnrýni
skilja og nota viðeigandi stílbrögð, orðatiltæki og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
nýta sköpunargáfu og sýna sjálfstæði við úrvinnslu verkefna
flytja af öryggi vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
lesa sér til gagns og gamans bókmenntatexta síðari tíma
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrifa skýran og vel uppbyggðan texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum ...sem er metið með... verkefnum og prófum
beita málinu á árangursríkan og viðeigandi hátt við mismunandi aðstæður ...sem er metið með... munnlegri framsögn
tjá rökstudda afstöðu og taka virkan þátt í málefnalegri umræðu ...sem er metið með... munnlegri framsögn
draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta og geta miðlað því á skýran hátt til samnemenda sinna ...sem er metið með... verkefnum,prófum og munnlegri framsögn
átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum ...sem er metið með... verkefnum og prófum
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ...sem er metið með... verkefnum
sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum ...sem er metið með... verkefnum og prófum
Fjölbreytt verkefnavinna, smærri próf og skriflegt lokapróf.