Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429105381.52

    Bókmenntasaga frá siðaskiptum til nýrómantíkur
    ÍSLE3SN05
    72
    íslenska
    Siðaskipti til nýrómantíkur
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Nemendur kynnast bókmenntasögu og bókmenntastefnum í gegnum mismunandi texta, ljóð, smásögur, skáldsögur og fræðitexta. Haldið verður áfram að þjálfa nemendur í ritun.
    ÍSLE2ES05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi tegundum bókmenntatexta
    • stefnum í íslenskum bókmenntum á tímabilinu
    • orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
    • ritgerðasmíð og heimildavinnu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skrifa og ganga frá heimildaritgerð
    • lesa allar gerðir ritaðs máls að fornu sér til gagns og gamans
    • skilja lykilhugtök og greina mismunandi sjónarmið
    • flytja af öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tilteknum málum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita málinu á árangursríkan og viðeigandi hátt í ræðu og riti ...sem er metið með... verkefnum og prófum
    • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta ...sem er metið með... verkefnum, prófum og munnlegri framsögn
    Fjölbreytt verkefnavinna, smærri próf og skriflegt lokapróf.