Áhersla er lögð á skilning á samfelldu dönsku ritmáli við lestur og úrvinnslu á fjölbreyttum textum sem tengjast daglegu lífi og danskri sögu og menningu. Stefnt er að því að auka orðaforða nemenda á ýmsan hátt og að þeir geti tjáð hugsun sína og rökstutt mál sitt bæði munnlega og skriflega. Nemendur eru hvattir til sjálfstæðra vinnubragða og til að bera ábyrgð á eigin námi.
DANS2AA05 eða DANS2AH05. Áfanginn er skylduáfangi á málabraut og valáfangi á öðrum brautum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
dönsku ritmáli svo hann geti lesið alla almenna texta án vandkvæða
helstu þáttum danskrar menningar og samfélagi
hvernig hægt er að beita tungumálinu til að tjá skoðanir bæði munnlega og skriflega
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa fjölbreytt efni bæði fræðilegt og bókmenntalegt
beita mismunandi lestraraðferðum
geta hlustað á og skilið almennt talað mál
tjá sig munnlega og skriflega á dönsku án teljanlegra málhnökra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa hvers kyns texta, bæði rauntexta og bókmenntir og tjá sig munnlega og skriflega um efni þeirra með viðeigandi orðaforða
hlusta á og miðla efni með viðeigandi orðaforða
skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni og fræðitexta
taka þátt í skoðanaskiptum og færa rök fyrir máli sínu
bæta færni sína í dönsku
Á önninni taka nemendur próf og/eða gera verkefni þar sem reynir á munnlega og skriflegri færni og gilda þau sem hluti af lokaprófi. Lágmarkseinkunn í lokaprófi er 5.