Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429186536.46

    Franska 5
    FRAN2EE05
    12
    franska
    Franska 5
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Unnið er með alla færniþættina fjóra, tal, hlustun, lesskilning og ritun. Einnig er unnið með þemu tengd bókmenntum, kvikmyndum, auk sögu og menningu landsins. Nemendur öðlast aukinn orðaforða og mikil áhersla er lögð á rétta málnotkun
    FRAN1DD05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • orðaforða tungumálsins, sem á þessu stigi er orðinn mjög umfangsmikill
    • góðum framburði, áherslum og hljómfalli tungumálsins réttri málnotkun
    • menningu Frakklands
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál, bæði í kennslustofunni og í ýmsum miðlum, eins og t.d. í sjónvarpi, útvarpi og í kvikmyndum
    • geta bjargað sér vel á frönsku í ýmsum aðstæðum og tjáð skoðun sína á ýmsum málefnum, bæði í ræðu og riti
    • skilja texta, eins og t.d. blaðagreinar og skáldsögur / smásögur sem ekki eru sérstaklega ætlaðar nemendum
    • skrifa innihaldsríkan texta um ýmis málefni
    • nota tungumálið rétt
    • vinna fjölbreytt verkefni ýmist einn eða með öðrum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina og flokka upplýsingar úr textum eða því sem hann heyrir
    • tjá sig um hin ýmsu málefni við einn eða fleiri
    • bregðast við hinum ýmsu aðstæðum sem upp kunna að koma
    • skrifa lengri og flóknari texta um ýmis málefni en áður
    Ekkert lokapróf er í áfanganum, en nemendur vinna verkefni jafnt og þétt yfir önnina. Verkefnin eru af ýmsum toga, þar sem unnið er með texta, kvikmyndir, blaðagreinar, fyrirlestrar fluttir og ritunarverkefni, svo eitthvað sé nefnt