Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429199290.88

    Plötuvinna blikksmiðir 2
    PLÖT3BS05
    1
    Plötuvinna
    Blikksmiðir 2
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Að áfanganum loknum geta nemendur beitt helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við smíði í blikksmíði. Þeir þekkja helstu efniseiginleika málma og geta smíðað hluti úr því eftir nákvæmum teikningum. Ennfremur geta nemendur skipulagt vinnu sína m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi. Nemendur öðlast hæfni til að vinna úr ryðfríu og galvaníseruðu járni, áli og öðrum efnum sem notuð eru í blikksmíði.
    PLÖT2BL05, HLGS2TI05 (PLV2B05 og TIG2A05)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • almennum umgengnisreglum við ýmsar gerðir stáls þannig að ekki hljótist skaði af.
    • ýmsum gerðum af skurðarvélum svo sem plasma-, vatns- og leiserskurðarvélum og mismunandi notkunarsviðum þeirra.
    • lóðningu og silfurkveikingu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • smíðað einfalda hluti eftir smíðateikningum.
    • útfært smíðateikningar á plötu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta mismunandi efnisgerðir sem hann getur þurft að vinna með.
    • nota helstu vélar og verkfæri sem notuð eru við smíði úr þunnplötum og notkunarsvið þeirra, s s. klippur, beygjuvél og vals.
    • meta áhrif beyginga á stærð smíðisgripa úr ýmsum efnum í þunnplötum.
    • valið efni úr efnisrekka eftir gefnum forsendum um gerð og þykkt.
    • klippt með hand- og vélklippum 1–3 mm þykkar plötur með 0,5 mm nákvæmni.
    Verkefnavinna, smíðisgripir metnir og nemendur skrifa vinnuskýrslur.