Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429200491.62

    Rennismíði 1 grunnur
    RENN1GR05
    1
    Rennismíði
    Grunnur
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Kennt er á hefðbundinn rennibekk, fræsivél og borvél. Kennslan er einstaklingsmiðuð og eru öryggismál veigamikill þáttur námsins. Samhliða verklegri kennslu er bókleg kennsla. Námið byggir á verkefnalausnum, verk- og bóklegum.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • öryggismálum og umhirðu spóntökuvéla.
    • mismunandi hlutum spóntökuvélanna, tilgangi þeirra og möguleikum.
    • stillimöguleika rennibekkjarins við mismunandi verkþætti.
    • helstu uppspenniaðferðum í rennibekk og fræsara.
    • muninum á mismunandi gerðum rennistáls og í hvaða tilgangi þau eru notuð.
    • mikilvægi þess að gæta ávallt fyllsta öryggis þegar unnið er með spóntökuvélar.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leysa einföld verkefni í rennibekk innan 0,1 mm málvika.
    • skrúfuskera með tappa og bakka í rennibekk.
    • skrúfuskera öxul með skrúfuskurðarstáli.
    • fræsa mismunandi kanta á öxul ásamt því að fræsa kílspori.
    • sinna umhirðu rennibekks og fræsivélar á fullnægjandi hátt.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gæta ávallt fyllsta öryggis þegar unnið er við spóntökuvélar.
    • reikna út snúnings- og skurðhraða samkvæmt töflum.
    • finna réttan skurð- og snúningshraða og velja rétt verkfæri við lausn mismunandi verkefna.
    • leita ráða hjá reyndum mönnum þegar það á við.
    • gera stutta greinargerð um verkefni sem unnin eru þar sem fram koma upplýsingar um efnistök, véla -og verkfæraval, framvindu verks og vinnslutíma.
    Hlutlægt mat á verkefnum og greinargerðum nemenda og ástundun.